Færsluflokkur: Bloggar
Tjáningafrelsi ?
Fimmtudagur, 3. júlí 2008
Í ljósi þess að ég er hlynntur tjáningafrelsi, endurbirti ég hér með þessa frétt AP/MBL og set hana innan gæsalappa. Ég þakka MBL fyrir heimildirnar og einnig AP fréttastofunni. Ég ætla ekkert að taka neinn Hannes Hólmstein á þetta !!! Hahahahahahahahah
"Einn af öflugustu fréttamiðlum Bandaríkjanna, AP-fréttastofan, stendur nú í stríði við bloggara. Telur fréttastofan þá marga ganga of langt í að birta án leyfis orðrétta kafla úr skeytum fréttastofunnar í stað þess að endursegja í stuttu máli.
Fyrir nokkru sendi fréttastofan þekktri bloggsíðu vinstrimanna, Drudge Retort, bréf og bað hana um að fjarlægja sjö færslur þar sem vitnað var í AP-fréttir, lengstu tilvitnanirnar voru 79 orð.
AP segist nú áskilja sér rétt til að stöðva slíka notkun á skeytum hennar en ekki er ljóst hvort málsókn er í undirbúningi. Bloggarar eru margir bálreiðir þessari afskiptasemi og sumar bloggsíður hunsa nú með öllu framleiðslu AP-fréttastofunnar."
Jac
![]() |
Ætlar AP í stríð gegn bloggurum? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Mér er sama.....
Fimmtudagur, 3. júlí 2008
Ég verð að viðurkenna að mér er sko nokk sama um það hvort fólk taki í nefið eða vörina.... mér finnst það 100% skárra en að þurfa að fá sígarettureyk sem aðrir eru að njóta.... ofan í lungun mín ! Það er ekki nema ég væri tilneyddur að slefkyssa munntóbaksnotanda, sem ég færi fyrir alvöru að kvarta..... þakka guði fyrir að konan mín er ekkert fyrir munntóbak svo ég er tiltölulega öruggur.
Jac
![]() |
Hættara við krabba í munni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Shit !
Fimmtudagur, 3. júlí 2008
Ég er nú hræddur um að ég myndi bara skella hið snarasta á ef þessi gaur myndi hringja í mig..... hahahahaha
Jac
![]() |
Sjálfsvígsmyndband vekur mikla reiði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Og?
Fimmtudagur, 3. júlí 2008
Og hvað ? Á ekkert að fylgja fréttinni hvernig fólkið smitaðist? Er salmonella smitsjúkdómur með berst manna á milli með hnerra eða getur það verið að hún smitist með illa elduðum kjúklingum? Þannig að þeir sem hafa smitast eru kannski bara slóðar í eldhúsinu eða við grillið !? Nei, það hljómar víst miklu betur að segja hálfkláraða frétt.... krydda hana örlítið upp og framleiða hana svo hráa svo mér líður eins og salmonellusjúklingi eftir lesturinn.... hálf óglatt og langar til að prumpa!!!!
Jac
![]() |
Salmonella í Danmörku |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Loksins.....
Þriðjudagur, 1. júlí 2008
Það hlaut að koma að þessu einn góðan veðurdag.... og það gerðist núna. Ég get þá loks farið til Nýju Jórvíkur og úðað í mig frönskum og hamborgurum með töluvert minni samviskubiti en áður.... ehhh nei annars, man núna að ég borða ekki franskar og hamborgarar eru bara svona ef allt annað þrýtur. Hér í DK vantar tilfinnanlega almennilega heilsuskyndibitastaði. Kannski maður opni bara einn !? Einhverjar góðar hugmyndir fyrir mig...markaðshagfræðinginn?
Kveðja
Jag Norðquist
![]() |
Transfitusýrur: Fita bönnuð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
What the Fu** !!!
Mánudagur, 30. júní 2008
Sko, gengur þetta ekki aðeins á móti gildum kirkjunnar ? Þarf að fara taka út úr hjónasáttmálanum setninguna "þar til dauðinn aðskilur" og setja inn "þar til kirkjan ykkur aðskilur aftur"!? Ég er allavega á móti þessari ódýru lausn.
Jac
![]() |
Geta fengið skilnað með kirkjulegri athöfn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
AFV (America Funniest Homevideos)
Sunnudagur, 29. júní 2008
Ég sit hér klukkan 01:44 á sunnudagsmorgni og er að skoða Facebookið, blogga á Mbl og svoleiðis stöff.... allir sofnaðir og ég með sjónvarpið lágt stillt í bakgrunninum..... svo fór ég að horfa með öðru auganu á AFV.... og Guð minn góður..... Bob Saget er bara einn sá allra misheppnaðasti sjónvarpskynnir sem ég hef augum litið !! Hvernig í andsk*** stóð á því að manninum var ekki sagt upp eftir fyrstu seríuna? Ég á bara aldrei eftir að skilja það.... hann sennilega ekki heldur. Þetta var orðið svo pínlegt að hann sjálfur var farinn að hreyta ónotum í sjálfan sig !!! Ég er skapi næst að fara til Hollywood og lemja Vin Di Bona, garuinn sem framleiddi þessa þætti.
Ef þið lesið á netmiðlunum eftir nokkrar vikur.....
Vin Di Bona Brutally beaten with raw cod fish, right across the face, þá getiði verið viss um að ég átti þar hlut að máli. Það dugar ekkert annað en hrár þorskur á svona pakk.
Bestu kveðjur
Jac
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Æ ég....
Sunnudagur, 29. júní 2008
Ég er svo mikil bíófrík að ég væri til í að sjá þær allar... með massa popp, vatn og nógan tíma :)
Jac
![]() |
Vélmenni á toppinn vestanhafs |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ha ?
Sunnudagur, 29. júní 2008
Er virkilega EKKERT annað hægt að skrifa um en þetta ? Þetta er ein sú AUMASTA "frétt" sem ég hef séð síðan síðasta fréttin um Brittneyju Spears var hér um daginn.
Lúða Gúrku Frétt vikunnar
Jac
![]() |
Göngustígur á Capri opnaður eftir 32 ár |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Hvenær ætla....
Laugardagur, 28. júní 2008
Hvenær ætla einhverjir með viti að taka á þessu með spákaupmennskuna ? Ég ersamt hræddur um að ríkisstjórnir margra landa, græði hreinlega of mikið á olíukrísunni til þess að vera eitthvað að flýta sér að grípa inn í.
Jac
![]() |
Blikur á lofti |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)