Æ inn......

Innilega til hamingju litla Spears ! Ég er samt alveg álíka spenntur fyrir því að hún sé orðin móðir, og ég yrði ef ég frétti að Guðsúna Spjaldardóttir á Snúðavík vestur Strandabarðahreppi hefði eignast tvílemda ær ! Eiginlega er þetta svo ó-intressant að fyrirsögning varð að vera sett upp þannig að systir móðurinnar, sá frægi einstaklingur með öll persónulegu vandamálin (sem ég veit meira um en mín eigin vandamál), varð að vera skrifuð í titilinn "Britney orðin móðursystir" !!! En ein kléna fréttin af fólki sem okkur langar eiginlega ekkert að vita um en blöðin ota að okkur að gersamlega misskildri "Góðgerðastarfsemi" !

Hér eru nokkrir einstaklingar sem mig langar EKKERT til að heyra um meira og gæti vel lifað ef það kæmi fjölmiðlabann á:

Britney Spears

Josef Fritzl

Þriðji Björninn á Hveravöllum

Anni Fønsby (Dönsk Mella)

Amy Winehouse + Gaur (sama hvaða gaur sem hengir sig á hana)

Og að lokum... Fjórir laxar í Kjósinni.

Þetta er svo auðvitað opinn listi því það eru jú margir í viðbót sem mætti nefna.

Bestu kveðjur

Jac 


mbl.is Britney Spears orðin móðursystir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jac Norðquist

Mikið Djö... er ég sammála þér ! Ég er formlega hættur að klikka á þessa Britney linka... en segðu mér samt eitt... hvernig var þetta eiginlega áður en mælingar hófust á "klikki" eins og td bara við lestur blaða? Þá var auðvitað ekki séns í helvíti að "mæla" hvort ég las frétt um Britney eða bara dánafregnir og jarðarfarir? Sérðu hvert ég er að fara...... Takk fyrir að nenna að kommenta hjá mér :)

Jac Norðquist, 20.6.2008 kl. 16:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband