Hæfileikaríkir Dópistar !

Hvað er málið með dópnotkun? Ég er greinilega vonlaus um frægð og frama á ritvellinum nema ég fari að fá mér í haus eða nös ? Þessi edrúmennska mín er semsagt að eyðileggja alla von um nokkurn frama á braut hinna mögnuðu listagyðju!? Ég tók greinilega kolranga ákvörðun þegar ég var 15 ára og sagði nei við áfengi, tóbaki og öðrum heila-brenglandi efnum? Nei nú er bara nóg komið.... ég ætla að byrja magnaðan dópferil og þið eigið sko eftir að sjá fréttir af Jac Norðquist í blöðunum..... ójá.... Nú stend ég upp úr tölvunni og byrja ferilinn á eins og einum rótsterkum expresso, guð má vita hvert næsti bolli leiðir mig?

Á réttu brautinni loksins. kveð ég.

Jac "Óje" Norðquist


mbl.is Amy Winehouse enn á sjúkrahúsi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband