Færsluflokkur: Bloggar
Þarna er ég sko....
Fimmtudagur, 12. febrúar 2009
... alveg sammála Michael Caine.... Ég bý við svipaðar aðstæður. Á fallegustu konu í heimi og bara finn enga þörf á að líta neitt í kringum mig :)
Jac
Alveg hrikalega ástfanginn af konunni sinni
Engin jafn fögur og eiginkonan | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Takk...
Laugardagur, 7. febrúar 2009
Takk MBL fyrir að senda blaðamann til þess eins að spyrja Fjölni að því hvernig honum fyndist að gömul kærasta væri að lýsa því yfir að henni fyndist best að gera do do með núverandi manninum sínum.... hann væri bara langbesta do do-ið sem hún hefði fengið...... Ritstjóri MBL hlýtur að hafa fengið hland fyrir hjartað og haft upp á sínum allra besta Rannsóknarblaðamanni, rifið hann úr Morðmáli vikunnar og skipað honum að hafa uppi á Fjölni annars væri þjóðarheill í voða.... "Lesendur okkar bara verða að vita sannleikann" ... er Fjölnir ekki bara að drepast úr afbrýðisemi vegna þessara ummæla stelpuskjátunnar???.... Og nú, þökk sé vösku liði starfsmanna á MBL, öllu nær um það tilfinningarót sem ummæli hennar hafa ollið á Íslandi.... en það sorglega við þetta er að Fjölnir bar sig bara vel og kvað stelpuna sennilega haldna Alzheimer.... því þegar hann var að Do do-a hana.... þá skríkti hún nú upp að hann væri sá besti.........
Nú eftir lestur þessara dásemda frétta... fer ég yfir farinn veg og reyni að muna öll skiptin þegar mínar fyrrverandi..... dásemduðu sína fyrrum elskhuga..... meðan við vorum saman.
Er það ekki bara málið að kvenfólk og karlfólk eigi það til að hrósa sínum maka fyrir td kynorkuna?
Núverandi maka það er að segja......
Konan mín er allavega langbest
Myndi maður nokkuð segja annað????
Jac
Fjölnir segir Mel B líklega bara með alzheimer | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
JIBBÍ VEI HÚRRA ! !!!!
Miðvikudagur, 4. febrúar 2009
Takk Katrín Jakobsdóttir !!!
Takk
Takk
Takk
Takk
Takk
Jac
Vék stjórn LÍN frá | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Tek að mér....
Mánudagur, 2. febrúar 2009
Kæru skókastarar um heim allan. Þar sem hefur borið á því vandræðalega ástandi að þið eigið erfitt með að hitta Fíl þótt þið hélduð í halann á honum, hef ég ákveðið að bjóða upp á ör-námskeið í almennu skókasti sem og ólympísku.
Allar nánari upplýsingar má nálgast á heimasíðu minni
http://www.i-am-to-dumb-to-throw-a-shoe.com
og einning á
http://www.idiot-guide-in-shoe-throwing-olympicstyle.com
Með bestu kveðjum
Jac
Kastaði skó í kínverska forsætisráðherrann | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Huh... á ekki bara
Mánudagur, 2. febrúar 2009
Ætli þeir kenni okkur Íslendingum ekki um þetta snjó-fár líka ? Maður á allt eins von á því að Goddi Brúni komi og segi Íslendinga bera ábyrgð á þessum lægðum.... ekki yrði ég mikið hissa!
Jac
Mesti snjór í átján ár | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Ég er hlynntari....
Fimmtudagur, 29. janúar 2009
Ég er hlynntari því að áfengismörkin verði 20 ára í það minnsta ! Mér finnst alger hryllingur þegar ég verð vitni að því að 15 ára kríli eru að drekka fyrir framan foreldra sína með þeirra leyfi.... ég ætla að ala mín börn upp í því að áfengi er bara alls ekki sniðugur drykkur á nokkurn hátt !
Jac
Börn yngri en 15 ára neyti ekki áfengis | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Þjóðskammar Flokkurinn
Þriðjudagur, 27. janúar 2009
Já já reynið bara að dreifa athyglinni frá skömm Sjálfstæðisflokksins og ráðist eins og óðir á allt annað en þá staðreynd að þið Drulluðuð langt upp á Sjálfstæðisbakið á ykkur..... ég legg til að þið leggið meira að segja niður nafnið á auma flokknum ykkar og farið að kalla ykkur ÞjóðSkammarflokkinn !!!
Jac
Björn: Forsetinn gekk á svig við hlutleysi sitt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Vitur....
Þriðjudagur, 27. janúar 2009
Á vísi má lesa það að Sjálfstæðismenn segjast hafa verið tilbúnir að breyta yfirstjórn Seðlabankans..... já það er auðvelt að vera vitur eftir að maður er búinn að míga í brækurnar, eða í tilfelli Sjálfstæðisflokksins... drulla upp á bak!
Jac Norðquist
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Spennan verður ekkert....
Sunnudagur, 25. janúar 2009
Kæri Geir, spennan verður ekkert losuð fyrr en þú, Davíð Oddson og Sjálfstæðisflokkurinn eru farnir í langt langt frí frá störfum!
Jac Norðquist
Geir: Má ekki missa dampinn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Tvíeggjað sverð
Laugardagur, 24. janúar 2009
Að mínu mati, sem auðvitað er óbrigðult, er þetta tvíeggja sverð, þessi löggæsla okkar íslendinga. Það er nefnilega þannig að í pínulitlu þjóðfélagi eins og ísland óneytanlega er, þá þarf að stíga örlítið varlegra til jarðar en hægt væri í td Kaupmannahöfn eða New York, stórborgunum þeim arna.
Það er nefnilega þannig að sálsjúki ofbeldismótmælandinn Páll Smérumbolla Slepjuson á kannski bara heima í sama stigagangi og Óeirða-lögreglumaðurinn Pétur Passarþig Jónsson. Páll þekkir auðvitað ekki Pétur þegar hann er að rífa upp gangstéttarhellur með offorsi svo það hreinlega blæðir úr fingurgómunum, til þess að henda nú í hausinn á þessar ógeðs-löggu sem hlýtur að vera holur búningurinn en ekki ágætur fjölskyldufaðir sem býr í þarnæstu íbúð á stigaganginum hjá Páli.
Pétur Passarþig Jónsson, þekkir auðvitað Pál og ekki af neinu slæmu kannski, bara svona hefur séð hann á stigaganginum og niðri við póstkassana. Páll mætir ekki á húsfélagsfundi því hann leigir íbúðina sína af eldri konu sem á heima í minni íbúð á neðstu hæðinni og leigir út stóru íbúðina sem hún fékk í sinn hlut við skilnaðinn, svo að þeir hittast ekki þar. Pétri langar til að hrópa, Nei blessaður Palli.... en í staðinn horfir hann opinmynntur á Pál, rífa upp helluna og fleygja henni æi hausinn á sér.... Pétur man svo bara næst eftir sér á slysó. Það var svo erfitt að mæta honum Palla við póstkassann alla tíð eftir þetta tilgangslausa ofbeldi.....
Nú að hinni hlið eggjarinnar.......
Pétur fékk gríðarlega öfluga 6 vikna þjálfun í rósturstækni, hannaðri af virtum skóla í París... höfuðborg mótmælenda. Þar er kennt að við minnsta æðisráð í auga, skal gasa og það vel... passa sig líka að gasa sem flesta til vinstri við meintan ofbeldissegg og líka þá á hægri, þeir væru hvort sem er sennilega vinir seggsins.
Það sem var EKKI kennt, var.... Munið mannlega þáttinn og múgstjórnun með yfirvegun. Á okkar litla landi eru hreinlega bara öðruvísi reglur í mannlegum samskiptum og lögreglan má ekkert gleyma því að við erum ekki bara mótmælendur, heldur líka fólk. Það hreinlega gengur ekki að nota ákveðnar aðferðir á 50-60 manns sem ætlaðar eru fyrir 2-3000 manna hóp ! Það hefur alltaf gengið betur í íslendinginn að "tala" hann til á vinsamlegu nótunum heldur en að espa upp víkinginn í honum með fábjánaháttum og yfirgangi.
Ég virkilega finn til með lögreglunni, sem persónum í tafli BB, að þurfa að búa við þetta kjánalega skipulag deildarinnar. Það er ekki mönnum bjóðandi að starfa við þessi skilyrði. Þess vegna kætist ég yfir því að blessaða stjórnin virðist loks vera fallin og það er mótmælunum að þakka... engu öðru.
Ég finn til með konu þessa tiltekna lögreglumanns og honum sjálfum. Ég óska þeim alls hins besta og vona heitt og innilega að engin lögreglumaður eigi eftir að lenda í svona atburðum aftur.
Þeir verða hinsvegar "Lögreglumennirnir" að muna mannlega þáttinn.... eins og þessi blessaða lögreglukona sem gasaði blaðamanninn.... hún hefur greinilega verið að fletta í handbók óeirðalögreglunnar um stjórnun massans bls 235 þar sem segir: "Náðu tangarhaldi á fjöldanum (2-3000 manns með hnitmiðuðum gas-úða"
Bestu kveðjur
Jac Norðquist
„Innst inni er maður skíthræddur“ | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)