Hahahahah Bagger er....

Það er verið að leita á kolvitlausum stöðum að karl-uglunni !! Auðvitað fer hann eitthvert þar sem að peningarnir eru einhvers virði..... hvernig væri að leita á Hótlel 101 í Reykjavík ?

Jac


mbl.is Talið að Bagger kunni að vera í Mið-Ameríku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vá ! Var ég svona lítill einusinni...

Jac NorðquistÉg fann þessa mynd af mér áðan. Hún var tekin þegar ég var rétt um tveggja eða tveggja og hálfs árs gamall, rétt áður en við fluttum til Svíþjóðar.

Það er ótrúlegt að maður skuli hafa verið svona snoppufríður sem krakki.... lýtandi svona út í dag ! Hahahahahaha

Ég vildi bara leyfa ykkur að njóta minninganna með mér.

Já, eitt enn.... Mamma.... hvað í fjandanum varstu að spá með hárið á mér ???

 

Bestu kveðjur

Jac Norðquist

 


Smá update....

img_2444.jpgHér er mynd af litlu dúllunni minni. Hekla Rós dafnar rosalega vel og er hraust lítil hnáta.

Ég þakka Geirdísi fyrir kveðjuna í Gestabókinni og bið jafnframt að heilsa til baka. Gaman að sjá sporin ykkar.

Það er alveg nett geðveikt að gera í skólanum hjá mér og sósíal líf drengjanna minna tekur einnig töluverðan tíma. Nú áttu þeir afmæli á föstudag (28 Nóv) og við héldum upp á afmælið fyrir Mikael á Laugardag og svo í dag er það Gabríel.

Þar sem að þeir eru í sitthvorum bekknum var þetta eiginlega eina leiðin.... húsið sem við leigjum gæti ekki rúmað báða bekkina með góðu móti. Þetta gekk samt alveg ágætlega hjá okkur í gær og allir virkuðu bara glaðir. Við fengum góða hjálp frá dóttir Sigfúsar bróðir konunnar minnar og Hildar, konunni hans. Hún kemur einnig á eftir til að aðstoða við skrílinn !

Best að fara að undirbúa komu krakkanna....

bið að heilsa þeim sem lásu

Jac Norðquist


Æ ég er bara...

Ég er bara í einhverri Blogg-Kreppu þessa dagana..... kannski er ástæðan sú að ég er á kafi í prófum og það er ansi lítill tími aflögu til þess að deila eitthvað á blessaðar MBL fréttirnar.... mér finnst samt sem áður að : Dabbi eigi að taka pokann sinn, ríkisstjórnin segja af sér: Kosningar í Janúar: Ísland í ESB, Evru eða Dollar og síðast en ekki síst.... Rassskellum valda bankamenn opinberlega !

Jac 


úffff

Ég verð bara að segja "Loksins" !!! Mér finnst þetta auðvitað fjári sárt.... að vera fjárkúguð svona illilega af stórum þjóðum.... en hvað ef við hefðum átt svona upphæðir inni hjá þeim?

Svo er bara að vona að Bjöggi Landsbanki hafi aura fyrir þessu með því að selja restina af veldinu sínu.... skammist sín svo og fari til Kúbu að rækta appelsínur.

Nú vonar maður bara að helvítis gengið fari að þokast í átt að skynsamlegu marki svo við þurfum ekki að skrifa LÍN aumingjabréf og grátbiðja þá um að vinsamlegast "lána" okkur aðeins meiri pening svo við getum lifað sómasamlega hér í Danmörku.... og takið eftir því að ég segi LÁNA !!! Ekki gefa.... því þetta eru jú Lán.... ekki satt!

Bestu kveðjur

Jac


mbl.is Icesave-deilan leyst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Misskilningur....

Þetta er víst alveg misskilin frétt hjá MBL... þetta var ekki "Kanni" sem Indverjar sendu.... nei nei þetta var 30 lítra Kanna af Darjeeling te !.....

Nei bara segi svona.....

Jac


mbl.is Indverskur kanni á tunglinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Danskurinn !!! Hahahahaha

Þetta er "Öll" fréttin í BT um upphlaup Forseta Íslands á miðdegisverðafundi Norðurlandanna í Kaupmannahöfn um daginn..... þar réðst hann meðal annars á blessaða Danina og sagði þá vera lítið frændrækna blessuð greyjin... þið vitið svosem söguna en hér kemur úrklippan úr BT eins og fyrr segir.......

Island skuffet over Danmark

Den islandske præsident Ólafur Ragnar Grímsson langede i fredags ud efter Danmark under en frokost med diplomater fra flere nordiske lande.
Ps..... já, þetta er ÖLL fréttin.. ekki bara úrdráttur !!!
Jac

ÖRYRKJAR !!??

Hvað um Öryrkja ? Hvað um Nema sem eru erlendis ? Við sem erum nemar, eigum að fá einhvað sem heitir "Neyðarlán" ef við náum að væla nógu mikið í LÍN !?

FOKK !!

Jac


mbl.is Ný greiðslujöfnunarvísitala tekin upp
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Og var ....

Og var hann nokkuð að fara með rangt mál? Það finnst mér ekki.

Jac


mbl.is Forsetinn gagnrýndi nágrannaríki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Danir eru bara klikk !!!

Svona í alvöru... þá er aumingjans minnimáttarkenndin alveg að drepa þá. Það er Breaking News hér í dag, að Marie Prinsessa er ólétt...... ekki nóg með það, heldur er spurning dagsins... hvað á barnið að heita !? Í alvöru kæru Danir.... (mun aldrei aftur kalla þá frændur).... fáið ykkur líf ! Gerið eitthvað skemmtilegt... farið í Magasín og verslið, gerið bara eitthvað annað en að velta ykkur svona upp úr óléttu kóngafólksins..... eins og það er nú merkilegt !!!

Kjánar

Jac Norðquist


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband