Ha ? Er eitthvað betra....

að klessa á hverja aðra yfir umferðahnútunum og skella svo til jarðar í einni alsherjarklessu ? Oj nei ! Má ég þá biðja um gamaldags umferðahnút... kannski væri bara ráð að breikka vegi enn meira og fjölga sjoppum hahahahahahaha

Kveðja

Jac


mbl.is Flogið yfir umferðarhnúta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jæja.... það kom að því !

Kominn úr bloggpásunni og ekki seinna vænna.... var farinn að fá hótunarbréf og alles ! Það er að segja ef ég kæmi ekki úr fríinu Wink 

Takk fyrir kveðjurnar meðan á pásunni stóð.

 


Smá pása....

Er í smá blogg fríi... kem inn hress fljótlega.

Kveðja

Jac Norðquist


En sorglegt....

Hvar voru aðstandendur, vinir, einhverjir??? Mér finnst þetta bara vera hræðilega sorglegt.

Jac


mbl.is Greri föst við klósettsetuna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er ég sá eini.......?

Er ég sá eini sem finnst þetta vera fyndið....

"Björgunarsveitin Bjargaði Björgmundi"

Tek það fram að ég er afar feginn að enginn slasaðist og eignatjón virðist í lágmarki.

Kveðja

Jac


mbl.is Strandaði í Sandgerði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fínt mál....

Ég blogga nú bara af tómum skepnuskap, svona til að fá fólk til að lesa ruglið mitt. Mér finnst þetta samt ferlega skemmtileg útrás þótt ég sé sem betur fer alveg laus við þunglyndi og aldrei þjáðst neitt af því. Mér finnst þetta hinsvegar frábær leið fyrir fólk sem á í vandræðum með sína kvilla, að fá kannski einhverja lausn mála á bloggsíðum, en mér finnst samt skrítið að kalla þetta vopn í baráttunni !? Þetta blogg getur neflilega líka "Valdið" alvarlegum þunglyndisáhrifum.... skoðið bara hvað fólk kommentar tildæmis hjá Össuri Skarpa.... Ég er ekki að bera honum neina bót, ég einfaldlega les ekki bloggið hans lengur, enda ekki sammála honum. En að ég færi að kommenta einhvað skítlegt á  blogg sem ég er ekki sammála...er ekki minn stíll. Fólk sem kommentar skítlegt, er meira að dæma sig sjálft.

Kveðja

Jac


mbl.is Blogg gegn þunglyndi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Janteloven á Íslandi líka ???

Mig rak bara í rogastans þegar ég sá þessa furðulegu frétt á Vísir..... Pétur Blöndal eitthvað að gaspra um flottræfilshátt nýríkra.... má þá semsagt enginn láta á sér bera ef hann/hún hefur efni á því? Held að Pési hljóti að "aka" um á DSB reiðhjóli því ekki hef ég trú á því að maðurinn flassi einhverjum glæsijeppa eftir svona ummæli? Hann hlýtur einnig að búa í Æsufellinu í Breiðholti og verslar eingöngu í Bónus og fötin sín hjá RKÍ en ekki Sævar Karli.... æ þið vitið hvað ég meina.

Kveðja

Jac

 


Hvað ?

Hvað ætli hafi orðið til þess að Löggan sá ástæðu til að kanna ástand mannsins? Var það "ökulagið" eða stóð minn maður á dekki og söng hástöfum "Flaska af rommi á dauðs manns kistu hó hó hó" ? Mér kemur þetta auðvitað ekki rassgat við, en er samt svolítið forvitinn Wink

Jac 


mbl.is Grunaður um ölvun við skipstjórn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hmmmm

Þessi lýsing á alveg við mig... nema hvað að ég þvoði hárið í morgun?

Jac


mbl.is Sendir Britneyju kynlífsleikföng
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jamm, ekki ....

Það á ekki að reyna opna annarra manna póst.... vonandi að þeir láti sér þetta að kenningu verða. Ætli hafi staðið "Trúnaðarmál" á umslaginu?

Jac


mbl.is Eitrað bréf sent saksóknara
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband