Vá ! Var ég svona lítill einusinni...
Miðvikudagur, 3. desember 2008
Ég fann þessa mynd af mér áðan. Hún var tekin þegar ég var rétt um tveggja eða tveggja og hálfs árs gamall, rétt áður en við fluttum til Svíþjóðar.
Það er ótrúlegt að maður skuli hafa verið svona snoppufríður sem krakki.... lýtandi svona út í dag ! Hahahahahaha
Ég vildi bara leyfa ykkur að njóta minninganna með mér.
Já, eitt enn.... Mamma.... hvað í fjandanum varstu að spá með hárið á mér ???
Bestu kveðjur
Jac Norðquist
Athugasemdir
Æji krúttið sem þú varst og með þetta líka fallega hár, en Bói minn þú ert ennþá óskop mikið krútt
Knús á fam í danaveldi
Helga skjol, 4.12.2008 kl. 08:33
Þú ert nú voðalega krúttilegur á myndinni en ég hefði aldrei giskað á að þetta væri drengur á þessari mynd... he he Annars var þetta tískan, ég man eftir myndum af pabba frá því ég var á þessum aldri þar sem hann var með síðan lubba og stóra barta :)
Kristín Guðbjörg Snæland, 4.12.2008 kl. 08:52
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.