Samsærið

Sko, það vaða uppi samsæriskenningar um dauða-fölsun Fossets og er ég nokkuð viss um að þær raddir þagni ekkert við fundin á flugvélinni sem Fossett fékk lánaða í hinnsta flugið eða þessa "Beinflís" sem fannst á staðnum. Það er erfitt en ekki ómögulegt að fá "lánaða" beinflís úr eigin kroppi til slíkra sviðsetningar sem hér um ræðir.... ég er ekki samsærissinni, en skrítið ef aðeins finnst ein beinflís á slysstað ? Vonandi fjölskyldu hans vegna að það verði afgerandi með lát hans fljótlega. Einnig að samsærisdraugurinn verði kveðinn í kútinn við sama tækifæri.

Kveðja

Jac


mbl.is Höggið kostaði Fossett lífið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Einar Steinsson

Skrítið að aðeins finnst ein beinflís? Held ekki, brakið lá þarna í heilt á og íbúar svæðisins hafa fengið veislu.

Skil ekki hvers vegna fólk á svona erfitt með að trúa því að áhættufíkill látist í slysi.

Einar Steinsson, 3.10.2008 kl. 17:42

2 Smámynd: Gulli litli

Hann er örugglega að þykjast...Hann býr í Bárðardalnum núna..

Gulli litli, 4.10.2008 kl. 07:07

3 Smámynd: Gudrún Hauksdótttir

Nú...Mér fannst ég sjá hann hér í hverfinu

Hér er ég í hópi fallegra ,skemmtilegra manna og tú öfundar mig örugglega í kvöld.Ikke?

Á tónleikunum sko.

fadmlag á tig inn í góda helgi

kv. frá

Jyderup

Gudrún Hauksdótttir, 4.10.2008 kl. 14:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband