Ég held upp....

Ég held upp á 9 ára brúðkaupsafmæli mitt þann 21.08.´08... eftir á að hyggja, hefði ég kannski átt að gifta mig fyrsta febrúar 2003 (01.02.´03) fjórum árum síðar? Maður hefði óneitanlega fengið flotta dagsetningu inn í hringinn... en veistu, ég er eiginlega bara nokkuð sáttur við mitt. Mér finnst þessi eltingaleikur við flottar tölur vera svona nett kjánalegur en samt allt í lagi.

Annars var alltaf hugmyndin hjá mér að staðfesta giftinguna aftur ef konan myndi tolla með mér í hjónabandi í 10 ár. Það, að öllu óbreyttu, gerist á næsta ári. Ég verð fertugur líka á næsta ári.... ætti maður ekki bara að slá upp tvöfaldri veislu?

Bestu kveðjur til komandi brúðhjóna.

Jac


mbl.is 08.08. í stað 07.07.
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Villi Asgeirsson

Fara til Hawaii og láta pússa sig saman aftur í strápilsum.

Villi Asgeirsson, 6.8.2008 kl. 11:22

2 Smámynd: Jac Norðquist

Þetta er bara désskoti ágætis hugrenningur hjá þér Villi

Jac

Jac Norðquist, 6.8.2008 kl. 14:28

3 Smámynd: Kristín Guðbjörg Snæland

Líst vel á að endurnýja heitin og hvað er þá betra en að gera það við einhverjar kúl aðstæður? Hvað með í kafi??? Í loftbelg???? í flugvél og komast í klúbbinn þarna þú veist!!!! uppi á jökli???? í eyðimörk....??? komm on Hawaii er eitthvað svo venjulegt.... he he he smá grín vinur, datt bara í hug að núna þegar þú ert orðinn svona fitt þá væri tilvaldið að prófa eitthvað verulega frumlegt

Kristín Guðbjörg Snæland, 6.8.2008 kl. 14:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband