Ekki lesa þetta..... þetta er bara of langt !!!

Ég var oftar sem áður á ferðalagi til Íslands og þeir sem mig þekkja, vita að ég fer hvergi nema hafa svo sem eina danska Salami pylsu með mér hvert sem leið mín liggur. Jæja, minn er mættur í Leifsstöð og með ótvírætt bros manns sem hefur næstum ekkert að fela, ja utan nokkra vel valda Double Dong superDildos og svosem 3 stk analPluggDominators með hraðvirkum víbringi og innbyggðum lubricator, ásamt auðvitað sér-lengdri öryggisfesti ef kvikyndið tæki upp á því að skríða eitthvert sem það ætti ekki að skríða upp í....sko...lengra uppí !

Þetta var keypt mömmu mína og vinkonu mömmu hans palla sem bjó á Hlaðveigarstíg vestan við Bárugötu þar sem að blámálaða húsið sem stóð autt í amk 15 ár áður en Magga og Diddó festu kaup á því en fóru svo á hausinn því Diddó gat ekki staðið undir 18 börnum með einni vinnu, vitandi það að auki væri hann getulaus síðan Heitapottsslysið sauð bæði eistun á honum í mauk þegar hann var 17 ára, amk tveim árum áður en hann hitti Möggu í fyrsta skiptið. Hann kunni nú ekki við að hafa orð á því við Möggu þegar fyrsta barnið kom undir og svo eiginlega ekki heldur þegar næstu 17 komu undir heldur... þá átti það eiginlega bara ekki við að bera það á góma. Þau semsagt misstu húsið, hann skildi að lokum við hana og ákvað bara að koma úr skápnum, svona upp á tilbreytinguna. Það merkilega við þetta alltsaman var að nýju Casanovan hans, var faðir amk 7 barnanna hans, án þess að hann eða hinn vissi af því, en til að flækja ekkert söguna mína um smyglið í Leifsstöð, ætla ég ekkert út í þá sálmana!

Ég stóð bara alveg rólegur í biðröðinni við Tollhliðið og að sjálfsögðu valdi ég það græna enda hafði ég ekkert tollskylt meðferðis. Það er varla hægt að ætlast til að ég greiði einhvern toll af BDSM jólagjöfum sem Mamma ætlar að útdeila í jólaboði með vinum og vandamönnum eða er það? . Nei, svo ég stóð bara alveg salírólegur í biðröðinni. Tollararnir voru óvenju athugulir á vaktinni en það gerir ekkert til, ég hafði allt mitt næstum á hreinu og svo skemmtielga vill til að pabbi einnar af mínum allra bestu vinkonum er einmitt í þessu úrvalsliði tollara.

Ég var ekki smeikur við eitt eða neitt. Setti meira að segja upp sjaldgæft bros og dreifði því vandlega yfir til samferðamanna minna. Jú jú maður kinkaði meira að segja kolli og klappaði ungum dreng á kollinn sem var óþolinmóður að komast gegn svo hann gæti leikið sér með nýja GameBoyinn sinn, ferskan úr fríhöfninni „Snertu mig ekki Fokking perrinn þinn“ hvæsti hann á mig og gaf mér löngutöngina. Steinhissa á þessum helvítis unglingum snéri ég mér bara annað og lét sem ég sæi ekki litla hóruungann. Þegar það voru bara tveir á undan mér, áttaði ég mig á því að ég var stórglæpamaður á Íslenskan mælikvarða! Ég var með Danska Salami pylsu í farangrinum !!! Ég varð samstundis að einni stórri taugahrúgu, hjartað sleppti úr 4 hverja slagi og svitinn byrjaði að leka ofan í augun á mér. Ég fór að blístra „Atti katti nóa“ hátt og snjallt til að leiða taugaóstyrkinn eitthvað annað. Tók ekki eftir því að tollararnir, ásamt öllum nálægt mér fóru að stara í forundran á mig.

 Ég var víst að blístra nokkuð hærra en almennt ætti að gera á opinberum stöðum og lagavalið var ekki beint til að hrópa húrra yfir! Áfram mjakaðist röðin og sá á undan mér var bara með eitthvað of mikið af víni og tóbaki, gerðu tollararnir að því góðlátlegt grín og hleyptu honum í gegn enda vita allir að vín og tóbak eru mannbætandi andskoti og gerir engum gott að vera án þeirra þarfahluta. Öðru máli gegnir nú um Danskar Salami pylsur eins og ég átti nú eftir að komast að..... Ég ætlaði bara að strunsa í gegn eins og hefðarfrú.... eh.. eða HefðarHerra? En fékk þá skipun um að leggja töskuna á skoðunarborðið og opna hana! Ég horfði stíft á Tollarann og reynsi allt hvað ég gat að nota hugarorkuna til að fá hann til að snúa sér annað, svipað og Obi Van Kenobi gerði í star wars.....

hmmmmmmppppfffff !!! Neibb, gaurinn bifaðist ekki, en mér til undrunar dreif að aðra tollara? Hvað var að gerast, afhverju voru þeir um það bil að fara níðast á mér? Sjáið bara þetta andlit, þetta draumkennda bros sem leikur svo MónuLísulega um varir mér, hvernig er hægt að gruna svona Bangsalegt Sjarmatröll um græsku? Opna töskuna takk, endurtók tollarinn og fálmaði rólega eftir smellunni á táragas-brúsanum sínum. Ég hofði á þá einum af öðrum og fattaði svo allt í einu að ég var ennþá að blístra „Atti katti nóa“ á fullu blístri. Ekki nema vona að þeir voru orðnir álíka taugaveiklaðir og ég.

Ég skrúfaði snarlega fyrir blístrið og hrökk í gang... eh ha ? Já ég, ha... opna töskuna já já ég get það alveg..... ég reyndi að nauðbeygja helvítis heilakornið í mér að vinna yfirvinnu til að finna lausn á þessum vanda sem blasti við mér en helvítið var ennþá á dönskum tíma og það vita allir að danskurinn er nú ekki sá duglegasti er að yfirvinnunni kemur.

Heilinn var bara ligeglað með vandræði húsbónda sins og datt ekkert annað í hug en að bjóða upp á meira blístur? Nei, fokk it, hvæsti ég að heilanum og sjálfum mér. Greinilega sagði ég það líka upphátt því það fór eiginlega allt í Kaos hjá Tollurunum! Opnaðu motherfokking töskuna, mannandskoti, gargaði tollari númer eitt upp, meðan tollari tvö gargaði GAS GAS GAS ! Það vildi ekki betur en svo að tollararnir spreyjuðu hver sem betur gat í kringum sig og hurfu þeir brátt í gasskýið sem myndaðist.

Þar sem ég er hrálauksæta af guðs náð, hefur eitthvað smá piparúðaský engin teljandi áhrif á mig önnur en þau að mér langar bara  til að borða. Noh, lítandi í kringum mig á allt hóstandi og staurblint fólkið, fékk ég að lokum hugmynd og ekki heilafíflinu að þakka. Ég óð ofan í töskuna mína og reif upp salami pylsuna og sproðrenndi henni í fjórum munnbitum. Eftir á að hyggja hefði hún verið betri ef ég hefði tekið hana úr plastinu en skítt með það, hér var um neyðarúrræði að ræða og engin tími til eins eða neins. Ég leit snöggt í kringum mig meðan ég kjammsaði á gúmmulaðinu og sá þá strák-kveljuna með dónaskapinn. Leiftursnöggt framkvæmdi ég skítlegan verknað, kyngdi og rétti svo úr mér, tilbúinn með opna töskuna. Ég náði Kúlinu og beið eftir að tollararnir næðu sér af gasinu.

Eftir að hafa gramsað vel og vandlega án þess að finna neitt, var mér vísað fram í biðsalinn. Velkominn til Íslands.

Hann var engum vettlingatökum tekinn drengstaulinn með anal pluggana og dildóana, sem var í röðinni á eftir mér, gott ef hann var ekki kallaður djöfuls perri og annað álíka. Hann vissi ekki hvernig hann átti að vera og sagðist ekki einu sinni vita hvað anal væri hvað þá double dong eitthvað... ? Ég frétti síðar að hann, litla fíflið, hefði gengið gegnum „Full Cavity search“ Hahahaha það messar enginn við mig!

Mamma fyrirgaf mér alveg að hafa „gleymt“ að versla fyrir hana í Istegade áður en ég kom í heimsóknina. Ég fer bara í Júlíu og Rómulus, gengið er hvort sem er svo óhagstætt núna kæri Jac.


mbl.is Brenna pylsur sem má selja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Þetta er frábær saga

Gunnar Helgi Eysteinsson, 9.7.2008 kl. 17:43

2 Smámynd: Halla Vilbergsdóttir

andskotinn...þú ert æði;) ég var einu sinni tekin í tollinum með 11 kg af nammi,...;) meiru hef ég ekki smyglað.....og var það í heimleið frá köben.....;)

Halla Vilbergsdóttir, 9.7.2008 kl. 18:08

3 Smámynd: Marta Gunnarsdóttir

, Góður, en trúlega andfúll...

Marta Gunnarsdóttir, 9.7.2008 kl. 18:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband