Engar myndavélar?
Föstudagur, 20. júní 2008
Voru þetta einu túristarnir í öllum heiminum sem höfðu engar myndavélar??? Ekki einu sinni GSM til að taka mynd af meintum Bjarndýrasporum? Hvernig spor skilja annars tegundin "Hálendisbirnir" eftir sig? Ég prófaði nú að googla þessa tegund en fann bara William Wallace "Hálending" Hann var að vísu ekkert að þvælast við Hveravelli, enda drepinn af mönnum Englandskóngs fyrir þó nokkru síðan. Man alveg eftir myndum af honum.... hann var alltaf í baxi með augnskuggann.... náði alltaf langt út á kinnar.... grey kallinn. Það er svona sennilega að koma úr skápnum of snemma (á 10 öld). Illa klæddur í pils, með herfilega málningu...... en vá, ég er kominn að allt öðru, best að hætta.
Jac
Hálendisbjörn er hugsanlegur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Hahaha .. nákvæmlega - hvernig í ósköpunum stendur á því að ekki voru teknar myndir til að sanna tilvist sporanna 12.
Þetta verður núna næstu misseri - svona eins og ævintýri, úlfur - úlfur.
Knús og kram á ykkur þarna úti minn kæri Bói og farið vel með ykkur.
Tiger, 20.6.2008 kl. 14:32
Takk fyrir kveðjuna minn kæri TC ! Við gerum okkar besta til að blómstra eins og blóm í eggi :) Bið æðislega að heilsa Mömmu þinni... og öllum sem vilja fá mína kveðju.
Bói
Jac Norðquist, 20.6.2008 kl. 16:12
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.