Ég bara verð......
Fimmtudagur, 24. apríl 2008
Ég bara verð að lýsa yfir samstöðu með bílstjórunum !!! Það eru bara ár og dagar síðan einhver stétt tók sig til og mótmælti kröftulega. Kennarar hafa að vísu verið duglegir gegnum árin að mótmæla og fara í verkfall en kom on... hver hefur samúð með kennurum? Hahahahaha (guð minn almáttugur, ég er nú bara að grínast Stína "kennari" vinur minn) Ég segi bara ÁFRAM vörubílstjórar, látið ekki neikvæðar kerlingablækur draga úr ykkur kjarkinn... það þurfa ekki Allir á Íslandi að vera steyptir í sama neikvæðnismótið.... Eftir að Jón heitinn Sigurðsson mælti þau fleygu orð "Vér mótmælum allir" hafa bara nánast engvir mótmælt nokkru að ráði ! Ég tek það auðvitað fram að minnið mitt nær bara svona sirka fram að ísskápnum og lítið lengra en það..... en þetta finnst mér nú og þið verðið að eiga það við ykkur ef þið eruð ekki sammála. :)
Kveðjur
Jac
Gáfu ekki lagalegar skýringar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Gunnar Helgi Eysteinsson, 24.4.2008 kl. 13:38
Samkvæmt fréttablaðinu eða 24 stundum þá hefur ekki verið um svona mótmæli síðan 1968. Já það eru 40 ár síðan og ég ekki til hahaha. Ég er alveg sammála þér að það er rosalega mikið um neikvæðni. Verum jákvæð.
Örný Perný :D, 24.4.2008 kl. 13:47
Takk fyrir kommentið Örný Perný
Jac Norðquist, 24.4.2008 kl. 14:21
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.