Ég tæmdi ......

Já ég rauk nú til og tæmdi alla vasa, leitaði í sófanum og tæmdi baukinn hjá drengjunum en vantar samt 49,998 dollara upp á til þess að fá notið hennar Teri "Lúxushóru" Hatcher !

Það var hinsvegar erfiðara að útskýra fyrir konunni minni þennan skyndilega áhuga á hádegismat með stjörnunni, en þeir sem hafa horft á þættina Níðþröngar eiginkonur vita alveg hvað ég er að fara ;) Susan er bara sú auðveldasta í götunni og þótt leitað væri í næstu hverfi.

Mér finnst samt alveg ótrúlega "gegnsætt" þetta plott að safna mörgum milljónum fyrir Alzheimer sjúklingana... kom on !!! Eins og þeir eigi eftir að "Muna" hvort þeir fái nokkrar millur til eða frá ? Það er bara það auðveldasta í heimi að stinga hagnaðinum í vasann, klappa Ölsurunum á bakið og segja "Flott hjá ykkur" og þeir greyin kinka kolli og muna ekkert hvað þetta "flott hjá ykkur" var.

Kveðja

Jac

Þeir sem lesa þetta, eru beðnir að leggja inn 5000 íkr á reikning 1150-26-303030 til styrktar Falz-Heimer sjúkum. Ég mun persónulega sjá um reikninginn og útdeila eftir þörfum til þeirra sem muna eftir mér við útdeilinguna.


mbl.is Hatcher seldi sig
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Núna er bara að senda þetta sem keðjubréf...

Gunnar Helgi Eysteinsson, 17.2.2008 kl. 11:00

2 Smámynd: Helga skjol

Á ég að lána þér bói minn,ég veð bara í vasann hjá bróðir þínum hahaha.

Helga skjol, 17.2.2008 kl. 17:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband