Vá ég fann.....

Jahérna !! Ég bara fann ekki rassgat sniðugt að segja um greyjið Britney !! Kannski út af því að ég er sko kominn með upp í kok af fréttum af henni ! Ég fer að verða eins og grenjudrengurinn á Youtube (nei, ég ætla ekki að þýða youtube enda finnst mér fávitalegt að þurfa þýða allan andskotann) og væli mig blánn ef ég heyri mikið meira um hennar mál ! Sorry, mér koma þau ekki við.....

Jac


mbl.is Spears hefur tapað háum fjárhæðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sprautað á mig !!!

Sko á mínum unglingsárum þótti það hin mesta hneisa að láta sprauta á sig vatni, sem maður væri hundur á lóðaríi !!! Jæja, það er víst öðruvísi í Kanada reikna ég með LoL

Jac


mbl.is Fagnað með vatnsbogum í Toronto
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sorglegt afmæli :(

Hvort sem þau eru sek eða ekki, þá er þetta afar sorglegt afmæli Crying

Jac


mbl.is Hvarf Madeleine enn rannsakað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvaða.....

Ok, ef mánaðarlaun á Kúbu eru ekki nema 1500 íkr (nei, ég ætla ekki að láta freistast og spurja af hverju Kúbubúar fái greitt í íslenskum krónum), og þá er meðaljóninn rúmlega 3 ár að vinna sér inn fyrir tölvu ef hann bara leggur allt fyrir og borðar bara banana sem hann tínir á trjánum, hvaða "Rich Bitch" er þetta þá á myndinni að fá sér tölvu og hefur burðamenn og allt saman !? The Queen of Cuba ?

Jac


mbl.is Einkatölvur löglegar á Kúbu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það verður ekki langt.....

Það verður ekki langt í að flugfélögin fari þá að bjóða upp á Galeiðu-siglingar með vindorku !!! Það tekur að vísu svoooolítið lengri tíma, en sparar alveg hrikalega bensínið !

Ég segi enn og aftur "NIÐUR MEÐ OPEC"

Jac


mbl.is Fljúga hægar og spara eldsneyti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þau ættu kannski.....

Þau ættu kannski að fá "Kafarahundinn" í fréttinni hér að neðan hjá mér í heimsókn... þá myndi nú lyftast á þeim brúnin hehehehehehehe

Jac


mbl.is Gleður fólk óskaplega mikið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skof ef þetta er ekki.......

Það allra allra krúttlegasta sem ég hef séð lengi, þá veit ég ekki hvað !!!

Ég hef samt eiginlega ekkert meira að segja um þetta litla hundkvikyndi svo hérlæt ég staðar numið !

Jac


mbl.is Mondex til í allt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

HATURSSAMTÖK !!!!

Ég bara skil ekki afhverju t.d. Bandaríkjamenn og evrópa, taka sig ekki saman í andlitinu og snúa aðeins upp á hendurnar á OPEC !? Hvað er málið að láta þessa gaura svína svona á olíumarkaðinum? Nú segi ég stopp, hingað og ekki lengra..... ég biðla til íslensku þjóðarinnar að stofna andstæðuna við "Hollvinasamtök" og stofna Óvinasamtök OPEC !! Það þarf að snúa hatrinu frá Íslensku ríkisstjórninni og beina því í rétta átt, að OPEC ! Sturla bílstjóri er með mótmæli við ranga aðila, það er eins og að setja Hálsbrjóstsykur í rassgatið og sjúga þar til þú finnur eitthvað bragð í munninum..... eina bragðið sem þú kemur til með að finna verður bara "Skítabragð". Niður með OPEC

Jac

 


mbl.is Olíuverð lækkar enn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

What ?

Nú nú.... ætli það komist þá í "tísku" að láta drepa sig ?

Nei kannski harkalega orðað en mér finnst þetta vera tilraun til að hagnast á ógæfu annarra ! Ef ætlunin er að gera "heimildamynd" um óhugnað eiturlyfja, þá finnst mér málið horfa öðruvísi við, en að gera "Bollywood" mynd um málið er bara til þess fallið að gera ungmenni enn frekari ónæma fyrir afleiðingunum af ruglinu ! Þeim tekst neflilega alltaf að "Glorífæja" svona hátterni í bíómyndum....öfugt við það sem þeir kannski ætluðu!?

Jac


mbl.is Morðið á Keeling innblástur Bollywood-myndar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Æ en "Klaufalegt" !!

Já mér finnst þetta vera slys af "Klaufalegri" tegundinni ! Þegar fólk stofna lífi og limum í hættu með svona kjánaskap, fær það ekki samúð frá mér ! Hugsið ykkur bara svo ef hann hefði misst hjólið yfir á hinn vegahelminginn á bíl eða annað hjól og ollið verra slysi ! Ég er ekki sáttur við svona fíflalæti, bara alls ekki Angry

Nú það segir reyndar í fréttinni að hann hafi verið að "Prjóna" skammt frá Sandgerðis-vegi... sem þýðir kannski að hann var utan vega á einhverju góðu æfingasvæði og hugsanlega að æfa glænýtt atriði fyrir "Mótorhjólasirkús-Rögnvaldar Rauða" ? Þá er þetta slys bara eins og hvert annað "Skíða-slys" eða álíka og allt annað og minna mál ! Woundering 

Hey ! Shit .... er ég með boðskap eða hvað? Hmmmm "Ekki dæma, nema vita alla söguna" Hvernig hljómar það?

Jac


mbl.is Bifhjólamaður meiddist
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband