Ég sé ekki......

Ég sé ekki vandamálið !?

Hvað er ekta:

Pamela Lee ?

Jólasveinninn ?

Páskakanínan ?

Milli Vanilli ?

Ashley Simpson ?

ÓL Opnunaratriðið ?

Barmurinn á Dolly ?

Skýrmælgi GW Bush ?

Hárið á Davíð Odds ?

Andlitið á Michael Jackson ?

Það eina við þessa upptalningu (sem gæti verið svo miklu miklu lengri) er það að það verður ekki svo auðvelt að útsýra fyrir drengjunum mínum að Jólasveinninn er faktískt bara markaðsplott fyrir Kóka kóla.... ! En, annar þeirra, er samt farinn að gruna eitthvað.

Jac

 

 


mbl.is Allt í plati í Peking
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er sammála....

Ég er alveg sammála Kolbrúnu í þessu máli. Svo er bara spurning með úrræði í eftirvinnslu nálgunarbannsins... það er, að fá dómara til þess að lengja bannið eða koma með önnur úrræði. Semsagt, tímabundið nálgunarbann sett af lögreglu en svo er það í höndum dómara að lengja eða breyta banninu á síðari stigum.

Jac


mbl.is Vill nálgunarbann án dóms
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eigum við ekki bara....

Eigum við ekki bara að grafa göng yfir ? Ný WestFjarðar göng? Svo er hægt að brúa bilið yfir Davis flóa og yfir á Baffins eyju... þá er nú stutt í hana Ameríku ;) Já það er sko allt hægt ef viljinn er fyrir hendi

Jac


mbl.is Vilji til aukins samstarfs við Austur-Grænland
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hmmmm ?

Er það "Upphefð" fyrir Sundkappann, að vera líkt við þeldökkann golfspilara eða "niðursetningur" fyrir Golfspilarann húðmyrkvaða að vera líkt við líkams-hárlausa sundfrík ? Ég sé ekki alveg afhverju þarf að "líkja" þeim saman? Ég gæti allt eins séð setningu eins og "Doddi Pulsusali, er kallaður Buzz Aldrin meðal jafningja í pulsubransanum"..... Ha ? Já eða sko, sundkallinn þarna Mækúl FellPs... ja sko, hann er fyrir sundið sko eins og Tæger er fyrir golfið..... öööö já já ég skil.... NOT !!

Jac


mbl.is „Tiger Woods í sundskýlu“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hjálp? (Ótengt fréttinni...og þó)

„[Þá] kom högg og eins og hár brestur "

Getur einhver dyggur lesandi, sagt mér hver meiningin er með þessum hornklofum í upphafi setningarinnar hér að ofan? Ég játa það alveg að ég hef aldrei skilið notkunina á þessum hornklofum og sé þá reyndar ekki víða í notkun... ja, nema á MBL....

Takk

Jac


mbl.is Enginn tók eftir honum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ha ?

Trúir virkilega einhver því að matvælaverð LÆKKI á Íslandi ? Svona í alvöru.... er einhver þarna úti sem trúir því ??

Jac


mbl.is Verðlækkanir í augsýn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jahérnahér !!!

Þetta er bara klárt kraftaverk að mann greyjið skyldi hafa bjargast ! Það hefur greinilega einhver haldið verndarhendi yfir honum svo mikið er víst

 


mbl.is Heyrðu hjálparkall mannsins undan brúnni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Djöfuls kjaftæði !!!

Já þetta voru einmitt orð vinar míns er við vorum að ræða þennann meinta ósýnileika ! Hvað meinaru, sagði ég hissa, finnst þér þetta ekki vera merkilegt ? Nei, ég veit nú betur, sagði hann og var þungur á brún.... Ok, útskýrðu mál þitt, sagði ég, því ég er búinn að fylgjast með þessari tækni um nokkurt skeið... það er að segja þessari "Hulins-hjálma-tækni"

Sko, ég þarf ekki annað en að snúa mér að konunni, með gredduglampa í augunum..... og púff ! Ég er ósýnilegur !!

Jac


mbl.is Vísindamenn segjast skrefi nær hulinshjálmi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hélt þónokkuð....

Ég hélt þónokkuð upp á kallinn !

Hvíli hann í friði.

Jac


mbl.is Bernie Mac látinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ööööö hvernig smitast Herpes?

Er þá einhver búinn að vera eiga mök og/eða kossaflens við ostrur? Ég vissi alveg að þær þykja eiga að örva kynorkuna.... en til þess þyrfti maður að borða þær..... var einhver sem misskildi málið og bara fokkaði í þeim? Hahahahah

Jac


mbl.is Franskar ostrur deyja úr herpes
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband