Endurvakning ?
Föstudagur, 2. ágúst 2013
Á maður að reyna að finna andann og endurvekja bloggið ?
Knúz
Jac
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Er Facebook búið að sjúga...
Þriðjudagur, 19. júní 2012
Hvað er málið eiginlega? Er Facebook búið að sjúga úr mér alla ritgleðina eða hvað ? Er maður orðinn svo Face-aður að eina sem gildir eru stuttir og hnitmiðaðir statusar og ekki pláss fyrir nema 3-4 línur af ritefni og svo copy/paste frá öðrum statusum....
Jac
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Lost in Mail...
Sunnudagur, 15. janúar 2012
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
LambaFillet..próf-lok ;)
Laugardagur, 14. janúar 2012
Ég ætla að grilla Lamba Fillet handa okkur konunni. Fyrst er að gefa börnunum að borða pizzur og leyfa þeim aðeins að slaka á.. svo fara þau í bælið blessunin og þá verður farið í það að grilla, brúna kartöflur og gera salat. Hendi svo filletinu á grillið og legg svo á borð fyrir okkur hjónin. Með þessu verður auðvitað sveppasósa og við ætlum að opna eins og eina flösku af Valpolicella Amarone.
Svo er stefnan á að kveikja upp í arninum og hafa það bara huggulegt. Ég reikna nú fastlega með því að konan fari snemma inn í rúm því að hún var vakandi til kl 05:20 í morgun vegna prófsins (sólarhrings heimapróf)... Jæja, best að fara að gera allt klárt :)
PS... Megrun í pásu fram á morgundaginn... ekki segja Fitupúkanum frá því ;)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Súpa í viku...
Föstudagur, 13. janúar 2012
Bloggar | Breytt 14.1.2012 kl. 07:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Grár Nóvember...
Þriðjudagur, 29. nóvember 2011
Þá er einstaklega grár Nóvember að líða undir lok og við tekur... grár Desember? Æ vonandi bara að það fari að snjóa eða eitthvað álíka notalegt... skella á mér miklu frosti væri líka í lagi því að þá væri jú sennilega heiður himinn í það minnsta. Við héldum upp á afmæli drengjanna með öðrum (fráskyldum) tvíburaforeldrum. Mikael og Nikolaj héldu daginn saman í bowling höllinni á laugardeginum 26. og svo Gabríel og Oliver á Sunnudeginum 27. á sama stað. Það heppnaðist bara afar vel og allir voru ánægðir.
Við vöktum drengina alveg eldsnemma til þess að ná að opna gjafirnar áður en þeir færu í skólann og höfðum stillt þeim upp á eldhúsborðið... það vakti gríðarlega lukku hjá gaurunum :) Svo fóru þeir í skólann með ...ööö súkkulaðibollur (sem einu sinni hétu "Negrakossar" á íslandi) og sleikjó fyrir báða bekkina.
Eftir skóla komu svo 5 stykki drengir með þeim heim og fengu hér kökur og vöfflur með rjóma sem Guðbjörg var búin að skella í.
Sigfús og Sandra kíktu líka yfir ásamt börnum.
Eftir heimsóknina renndi ég niður á Burger King og Hamborgaði alla fjölskylduna... en það voru allir frekar lystalausir eftir rjómann svo það voru hálfétnir borgarar upp um alla veggi...
Mikael tók svo upp á því að veikjast strax og fjörið var búið og var kominn með 40,2°c um kvöldið.
Ég er að fara með hann til læknis núna upp úr 12. Ætli þetta sé ekki bara lungnabólga eins og Guðbjörg er búin að vera með síðustu viku... J
æja, best að fara að gera eitthvað vitrænt...
knús á fólkið.
Jac
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sko þetta er Classizkt !!
Þriðjudagur, 19. maí 2009
Þetta er bara enn eitt dæmið um andsvítans aumingjana sem "Finna hlutina áður en maður týnir þeim" !!!
Ég lenti í því hér um daginn að Pølle M Rassmussen, nágranni minn og óvinur fyrir lífstíð vegna hljóðkútslausar sláttuvélar sinnar og þá einkennilegu áráttu að slá alltaf garðinn sinn klukkan 07:01 á sunnudagsmorgnum, kom hér yfir til mín einn ágætis dag og bað mig að hringja á lögregluna. Það væri búið að stela öllu steini léttara úr bílnum hans!
Þar sem að við höfum verið tiltölulega heppin með lága innbrotstíðni hér í hverfinu, stökk ég til og hringdi í pólitíið og bað þá um að koma með forgangi og fullum blæstri!
Ég heyrði í fyrstu löggubílunum af 30 þegar blessaður nágranninn kom aftur yfir til mín og sagði "Undskyld min kære nabo Jac", ég settist bara óvart aftur í bílinn og hélt að stýrinu og öllu því hefði verið stolið! Hehehe svo rétti hann mér volga bjórflösku og þannig stóð ég á röndóttu nærbuxunum mínum með bjórflösku í hendinni klukkan 07:08 á sunnudagsmorgni þegar 30 lögreglubílar renndu í hlað.....
Það tók svo bara cirka viku áður en að konan gat leyst mig úr haldi lögreglunnar.
Jac
Hjólin hverfa í Nauthólsvík | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sammála.....
Sunnudagur, 10. maí 2009
Nei það er ég alls ekki.... mér finnst þetta ekki einusinni fyndið!!
Undir engum kringumstæðum á ofbeldi gegn eiginkonu, eiginmanni eða börnum, rétt á sér!
Jac Norðquist
Í lagi að slá konu sína fyrir bruðl | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Gat verið !
Þriðjudagur, 5. maí 2009
Ég er þá hærri en meðalmaður með alla mína 191 sentimetra !! Samt hefði ég nú haldið að meðalhæðin á Íslenzkum Karlmönnum væri hærri en þessi könnun gefur til kynna.
Jac "KörfuboltaProspect" Norðquist
Íslendingar meðal hávöxnustu þjóða | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Er virkilega.....
Sunnudagur, 3. maí 2009
Er virkilega svona erfitt fyrir MBL að breyta nafninu á "Svínainflúensunni" í samræmi við ákvörðun WHO eða alþjóðlegu heilbrigðisstofnunarinnar, í Inflúensa A eða H1N1 Inflúensa A..... Mér perónulega finnst þetta Svínslegt nafn og vona að MBL menn sjá nú sóma sinn í því að laga þetta.... síðastir fjölmiðla !!
Jac
226 svínaflensutilfelli í Bandaríkjunum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)