Bara frábært hjá Júní !

Ég er bara ofsalega ánægður fyrir hans hönd. Maður á að gera það sem manni langar til í lífinu (auðvitað ef það skaðar engan eða þannig) Hann hefur dreymt um nafnabreytingu lengi greinilega og lét verða af því.

Ætli það séu ættingjar sem hafa sagt við hann "Við munum aldrei kalla þig nýja nafninu þínu" ?

Ég breytti mínu nafni fyrir nokkru og allir ættingjar mínir voru einhuga um að óska mér til hamingju. Þau vissu jú að ég var að breyta nafninu mínu vegna þess að það var gamall draumur hjá mér og ég lét hann rætast. Ég er ofsalega sáttur í dag fyrir að hafa látið verða loks af þessu. Það eru bara 2 manneskjur í öllum heiminum sem hafa sagt beint út við mig að þær munu aldrei nokkurn tíma kalla mig nýja nafninu mínu..... Einkennilegt og særandi en ég er með sterk bein. Þoli nú alveg ýmislegt. Vorkenni eiginlega bara því fólki sem getur ekki séð hlutina í víðara samhengi... en svona er nú bara lífið.

Mínar bestu kveðjur til allra þeirra sem hafa breytt nafninu sínu eða hugleiða að gera það.

Jac Norðquist


mbl.is Breyttist í Júní í september
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband