Hann sonur minn !!!
Fimmtudagur, 18. september 2008
Ég var að taka flís úr olnboganum á Mikael syni mínum í gær. Hann var með tárin í augunum og spurði mig, pabbi, verður þetta rosalega vont?
Nei nei elskan, sagði ég, ekkert rosalega, en ef þetta verður vont, þá bara verður þú að bíta á jaxlinn ! Ég verð að ná flísinni svo það komi ekki sýking í sárið.
Jæja, hann herðir sig upp . svo kveinkar hann sér örlítið og bítur svo fast í vinstri öxlina á sér. Hvað ertu að gera drengur, spyr ég steinhissa? Ég er að bíta á öxlina eins og þú sagði mér að gera ef ég meiddi mig, sagði hann alveg jafn hissa á að ég skildi vera hissa !?!?!?
Hahahahahahaha æðislega erfitt að springa ekki úr hlátri
Jac Norðquist
Athugasemdir
Hahahahahahahaha bara snilld.
Helga skjol, 18.9.2008 kl. 22:48
æi en sætur..
Sólveig Kristín Gunnarsdóttir, 18.9.2008 kl. 23:27
Börnin eru svo einlæg.
Marta Gunnarsdóttir, 18.9.2008 kl. 23:57
Hahahahah ;) magnað...hugsaðu þér þessi börn eru bara æði
Halla Vilbergsdóttir, 19.9.2008 kl. 22:18
hahahahaha -
Gunnar Helgi Eysteinsson, 21.9.2008 kl. 16:15
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.