Kæri maður !
Miðvikudagur, 5. mars 2008
Hæ hæ elskulegi eiginmaður. Áður en þú kemur heim úr viðskiptaferðinni vil ég bara láta þig vita um smá óhapp sem varð hér heima. Ég vil samt taka fram að það er allt í lagi með mig og ég er alveg ómeidd, svo þú hafir ekki óþarfa áhyggjur. Málið er að þegar ég var að koma heim úr búðinni í gær á stóra pallbílnum og var að beygja inn í innkeyrsluna varð ég fyrir því að, í stað þess að stíga á bremsuna, steig ég óvart á bensíngjöfina. Bílskúrshurðin beyglaðist dáldið en það sem verra var að antik- Ferraríinn þinn, sem ég veit að þú heldur svo mikið uppá, beyglaðist dáldið mikið þegar pallbíllinn stoppaði uppá honum. Ég ætlaði að reyna að rétta hann aðeins og eina sem ég fann til þess voru nýju flottu golfkylfurnar sem þú lést sérsmíða fyrir þig. Ég bara gerði mér ekki grein fyrir því hvað væri veikt í þeim, en þær bara beygluðust líka. Þá hugsaði ég með mér að reyna að bæta fyrir þetta allt með því að hafa allavega allt hreint og fínt þegar þú kæmir heim svo ég ákvað að þvo öll nýju sérsniðnu jakkafötin þín. Þú manst, þessi gráu voru með oggolitlum sósublett á innanverðum jakkanum og þessi grænu voru pínu krumpuð á innanverðu fóðrinu. Því miður tókst ekki betur til en svo að ég setti þvottavélina óvart á suðu svo öll fötin þín hlupu um tvö númer. Elsku vinurinn minn, ég bara vona að þú fyrirgefir mér þennan klaufaskap, þetta var bara röð óhappa. Hlakka mikið til að fá þig heim, þín eigikona XXX P.S. ... Ó,,já og kærastan þín í Frakklandi hringdi....
Athugasemdir
HAHAHAHAHAHAHA hrikalega góður þessi,er alvarlega að hugsa um að stela honum.
Helga skjol, 5.3.2008 kl. 19:12
Gunnar Helgi Eysteinsson, 5.3.2008 kl. 22:51
Já SÆLL!
Páll Jóhannesson, 5.3.2008 kl. 23:31
Issssss geturðu ekki betur en þetta.... langt síðan ég heyrði hann Ég skal að vísu viðurkenna að hann er alltaf jafn góður . Kveðja Kristín
Kristín Guðbjörg Snæland, 6.3.2008 kl. 14:21
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.